Úr 94 kg niður í 76 kg. á 10 mánuðum

Sandra Rut Pétursdóttir, 33 ára tveggja barna móðir og hjúkrunarfræðingur, tók ákvörðun í janúar fyrir um ári síðan sem átti eftir að breyta miklu. Hún ákvað að sækja heilsuappið LifeTrack og segir hún þá ákvörðun hafa verið mikið gæfuspor.

Mín saga byrjaði í janúar

„Ég var komin á þann stað að mér leið einfaldlega ekki vel með sjálfa mig,“ segir Sandra.

„Ég var búin að prófa ýmislegt áður, meðal annars MyFitnessPal, en náði aldrei almennilega tökum á því. Mér fannst LifeTrack miklu notendavænna og einfaldara og það skipti mig öllu máli.“

Sandra segist hafa notað LifeTrack í um 8 mánuði yfir árið, með pásum inn á milli. Á þeim tíma fór hún úr 94 kg niður í 76 kg. Og það gerið hún án þess að missa vöðvamassa og styrkt.

„Ég hef ekkert verið svakalega dugleg í ræktinni síðan strákurinn minn fæddist. Ég labba meira í dag en æfi minna en áður. Munurinn núna er sá að ég kann á mína næringu og þar liggur stóra breytingin.

Neistinn og fyrstu árangurinn

„Þegar neistinn kemur og maður ákveður að gera breytingu, þá er svo mikilvægt að upplifa árangur í byrjun. Að finna að maður sé að fara í rétta átt. Það var nákvæmlega það sem gerðist hjá mér.“

Sandra segist hafa byrjað að borða eftir úreikningum LifeTrack eða í kringum 1900 hitaeiningum á dag og fór fljótt að finna mun, bæði á líkama og andlegri líðan.

“Mér leið bara ótrúlega vel, hafði góða orku og var alls ekki að upplifa hungur eins og svo oft þegar maður ætlar að stökkva af stað í átök”

Próteinið breytti miklu

„ Eftir að hafa notað LifeTrack í nokkra daga áttaði ég mig strax á því hvað ég hafði verið að borða alltof lítið prótein. Það góða við að vita þetta er að það er svo auðvelta að bæta úr þessu strax með LifeTrack. Eitthvað sem ég hafði verið að gera rangt í fleiri fleiri ár var leiðrétt á einni viku.”

Það er algengt að notendur LifeTrack tali um að þegar próteininntakan sé á réttu róli minnki sykurlöngun og hungur til muna og tekur Sandra einmitt undir það.

„ Ég hef bara alls ekki verið svöng á þessu ári og það segir allt sem segja þarf.“

Engin boð og bönn,

Á þessu ferðalagi lagði Sandra áherslu á að banna sér ekkert.

„Ég borða alveg kolvetni og hef leyft mér nammi reglulega. Munurinn er sá að áður fékk ég mér heilan nammipoka um helgar – í dag fæ ég mér minni skammta og nýt þess betur.“

„Ég er ekkert alltaf 100% nákvæm. Ég skil bara heildarmyndina miklu betur í dag. Það hefur gefið mér svo mikið frelsi.“

Skipulagið skiptir máli

Sem hjúkrunarfræðingur á vöktum hefur Sandra lagt áherslu á undirbúning.

„Ég tek með mér nesti í vinnuna, sýð oft egg og tek stundum morgunkorn og hleðslu með. Ég borða oft og í minni skömmtum, það hefur virkað mjög vel fyrir mig.“

Orkan, andlega heilsan og sjálfstraustið

Breytingin hefur haft áhrif langt út fyrir töluna á vigtinni.

„Orkan mín er miklu betri. Mér líður vel andlega og líkamlega. Sjálfstraustið hefur aukist og ég hef meiri trú á sjálfri mér. Þetta hefur haft jákvæð áhrif á daglegt líf, vinnuna og allt í kringum mig.“

Sandra er með vanvirkan skjaldkirtil og hrörnun í hnjám, sem hefur valdið miklum verkjum.
„Ég finn mikinn mun á hnjánum eftir að ég léttist. Það er rosalega góð tilfinning og ég bjóst alls ekki við því.“

Hvernig var að taka sér frí?

„Vika í fríi skiptir engu máli svo lengi sem ég held áfram eftir það. Ég er ekki stressuð fyrir framtíðinni lengur, því ég hef þekkinguna. Þetta er þekkingin sem mig vantaði.“

Í dag þarf hún ekki endilega að nota LifeTrack daglega.
„Ég hef lært svo mikið. Ég á í miklu heilbrigðara sambandi við mat en áður og mér finnst auðveldara að viðhalda árangrinum. Ég skil þetta allt mun betur, þetta er bara mjög mikilvægur lærdómur sem ég held að fylgi mér út lífið.”

Helsti lærdómurinn?

„Að þetta þarf ekki að vera allt eða ekkert. Með réttu verkfæri og aðferð þá er Þetta alveg hægt – ég er bara venjuleg, upptekin mamma.“

Ef þú ættir að gefa eitt gott ráð?

„Stundum langar mig rosalega mikið í eitthvað gott og þá fæ ég mér það bara. Ég skrái það oft fyrirfram, sérstaklega ef ég veit að ég ætla að leyfa mér. Þá tek ég það bara inn í planið. Eitt sem hefur hjálpað mér mjög mikið en það er að mæta ekki svöng í veislur.“

Úr 94 kg í 76 kg. á níu mánuðum. “Ég er bara venjuleg upptekin mamma sem hefur lítinn tíma fyrir ræktina“

Sandra Rut Pétursdóttir, 34 ára tveggja barna móðir og hjúkrunarfræðingur, hefur notað LifeTrack appið í níu mánuði sem hún segir hafa verið mikið gæfuspor fyrir sig.

„Ég var komin á þann stað að mér leið einfaldlega ekki vel með sjálfa mig,“ segir Sandra.

Aðspurð segir Sandra að hún hafi verið búin að prófa ýmislegt áður, m.a. MyFitnessPal appið en ekki náð almennilega tökum á því. LifeTrack appið sé mun notendavænna og einfaldara og það skipti hana öllu máli.

Sandra hefur notað LifeTrack appið í um níu mánuði yfir árið en með pásum inn á milli. Á þeim tíma fór hún úr 94 kg niður í 76 kg. án þess að missa vöðvamassa og styrk. „Ég hef ekkert verið svakalega dugleg í ræktinni síðan strákurinn minn fæddist. Ég labba meira í dag en æfi minna en áður. Munurinn núna er sá að ég kann á mína næringu og þar liggur stóra breytingin. Það sem er mér svo ofarlega í huga er að geta haft áhrif á konur sem eru eins og ég, kannski í vinnu, viðbótarnámi ásamt móðurhlutverkinu og finnst erfitt að finna tíma fyrir ræktina, að þetta er actually hægt án þess að fara í ræktina. Ég hvet auðvitað öll til að styrkja sig í ræktinni en ef maður hefur ekki tök á því um tíma, þá stoppar það mann ekki í svona vegferð”

Neistinn og fyrsti árangurinn

Sandra nefnir að þegar neistinn kemur og hún hafi tekið ákvörðun um að gera breytingu þá sé henni mikilvægt að upplifa árangur fljótt og finna að farið sé rétta átt. Sandra byrjaði að borða eftir útreikningum í reiknivél LifeTrack eða í kringum 1900 hitaeiningar á dag og fór fljótt að finna mun, bæði á líkama og andlegri líðan.

“Mér leið bara ótrúlega vel, hafði góða orku og var alls ekki að upplifa hungur eins og svo oft þegar ég fer í átak”

Próteinið breytti miklu

Sandra áttaði sig fljótt á því að hún var að borða alltof lítið prótein og gat bætt úr því strax með hjálp LifeTrack appsins. Eitthvað sem hún hafði verið að gera rangt í fleiri fleiri ár var leiðrétt á einni viku.

Sandra nefnir að þegar próteininntakan er á réttu róli þá minnkar sykurlöngun og hungur til muna og nefnir að hún hafi ekki verið svöng á þessu ári. Á þessu ferðalagi lagði Sandra áherslu á að banna sér ekkert en hún borðar kolvetni og leyfir sér nammi reglulega.

“Munurinn er sá að áður fékk ég mér heilan nammipoka um helgar en í dag fæ ég mér minni skammta og nýt þess betur.“ Aðspurð segir Sandra að hún sé ekki 100% nákvæm en skilur heildarmyndina mun betur í dag sem gefur henni mikið frelsi. Það hefur reynst mér mjög vel að fylgjast með hitaeiningunum og próteininu og hafa ekki of miklar áhyggjur af því að allt sé fullkomið. Mér finnst ég skilja heildarmyndina og það er góð tilinnning”.

Sem hjúkrunarfræðingur á vöktum hefur Sandra lagt áherslu á undirbúning og tekur með sér nesti í vinnuna. Oft sýður hún egg og tekur stundum Hleðslu og morgunkorn með sér. Hún borði nú oftar og í minni skömmtum sem virkar vel fyrir hana.

Breytingin hefur haft áhrif langt út fyrir töluna á vigtinni.

Sandra segir að orkan hennar sé mun betri og henni líði vel andlega og líkamlega. Sjálfstraustið hafi aukist og hún greinir jákvæð áhrif á daglegt líf, í vinnunni og á fólkið í kringum hana. Sandra er með vanvirkan skjaldkirtil og hrörnun í brjóski undir báðum hnéskeljum, sem hefur í gegnum tíðina valdið miklum verkjum.

„Ég finn mikinn mun á hnjánum eftir að ég léttist. Það er rosalega góð tilfinning og ég bjóst alls ekki við því“, segir Sandra.

Það að taka sér viku frí frá því að nota LifeTrack appið skipti engu máli í tilviki Söndru svo lengi sem hún hafi haldið áfram eftir það. Nú hafi hún þekkingu sem hana áður hafi vantað en þarf ekki endilega að nota LifeTrack appið daglega þar sem hún hafi lært margt og eigi í heilbrigðara sambandi við mat. Þetta sé lærdómur sem fylgi henni út lífið.

Góð ráð

Sandra er upptekin mamma sem náði frábærum árangri með réttu verkfæri og aðferð. Aðspurð um góð ráð segir hún:

“Það er kannski tvennt sem ég myndi vilja nefna. Annað er að þetta er langhlaup og það er eðlilegt að á þessu tímabili séu fullt af dögum sem eru ekkert fullkomnir. Þetta snýst alls ekki um fullkomnun heldur bara að halda áfram. Línuritið mitt sem sýnir það alveg ágætlega. Það voru kaflar þar sem vigtin fór upp en ég hált áfram því ég fann að þetta var að virka”

Þú nefnir að þú hafir alveg borðað sætindi og nammi, hvernig gerðir þú það?

„Já stundum langar mig rosalega mikið í eitthvað gott og þá fæ ég mér það bara. Ég skrái það oft fyrirfram, sérstaklega ef ég veit að ég ætla að leyfa mér. Þá tek ég það bara inn í planið. Það hefur svo líka hjálpað mér mikið að mæta ekki svöng í veislur.”