LifeTrack vottun Serrano og 15% afsláttur fyrir virka notendur LifeTrack.
Serrano hefur nælt sér í LifeTrack vottunina en hún er veitt veitingastöðum sem bjóða upp á hollan og næringarríkan mat sem styður við heilbrigðan lífsstíl.
Notendur LifeTrack geta nú bætt réttum Serrano með einum smelli inn í næringadagbók sína þar sem þeir eru forskráðir inn í smáforritið. LifeTrack vottunina fá veitingastaðir sem uppfylla viðmið sem LifeTrack setur fram. Hluti þeirra er að bjóða upp á rétti sem eru ríkir af trefjum og próteini og veita skýrar upplýsingar um næringargildi. Þá er gerð krafa um samræmi í skammtastærðum.
"Það er gleðilegt að Serrano sé næsti staður til þess að hljóta LifeTrack vottunina enda vinsælt stopp í amstri dagsins. Þar er lagt upp úr hollum réttum og samræmdu magni hráefna sem auðveldar notendum okkar lífið", segir Linda Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra LifeTrack.
LifeTrack vottunin hjálpar notendum LifeTrack smáforritsins að taka upplýstar ákvarðanir um hvað þau borða sem eykur næringarlæsi þeirra. Þá virkar vottunin sem hvati fyrir veitingastaði að bjóða upp á hollari valkosti sem stuðla að bættum lífsstíl fólks á Íslandi.
"Við hjá Serrano leggjum áherslu á að maturinn okkar sé hollur, ferskur og bragðgóður á öllum 11 stöðunum okkar út um land allt. Við erum ánægð með að hljóta LifeTrack vottunina sem fellur afar vel að okkar áherslum", segir Emil Helgi Lárusson stjórnarformaður hjá Serrano.
Auk LifeTrack vottunarinnar er Serrano nú samstarfsaðili í Vildarklúbbi LifeTrack. Virkir notendur LifeTrack appsins munu þannig fá 15% afslátt á öllum Serrano stöðum landsins.
LifeTrack smáforritið, sem var unnið í samstarfi við næringa- og íþróttafræðinga, er aðgengilegt í Apple Store og Google Play undir LifeTrack Iceland.