LifeTrack verður nú hluti af kennslu í næringarfræði
Námsbraut ÍAK í einka- og styrktarþjálfun hefur gert samstarfssamning við LifeTrack, sem verður nú hluti af kennslu í næringarfræði. Heilbrigður lífsstíll og aukin afkastageta eru í forgrunni bæði í náminu og í þróun LifeTrack-appsins.
„Við erum gríðarlega ánægð með að fá LifeTrack inn í kennsluna hjá okkur. Appið er öflugt og notendavænt sem styður við markmið okkar um að bjóða upp á nútímalegt og metnaðarfullt nám. Með því að nýta nýjustu tækni í kennslu getum við betur undirbúið nemendur okkar fyrir fjölbreytt og krefjandi störf í heilsurækt og þjálfun,“ segir Elvar Smári Sævarsson, fagstjóri ÍAK einka- og styrktarþjálfunarnáms Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Við hjá LifeTrack erum stolt af því að taka þátt í þessu samstarfi. Það er okkur mikilvægt að styðja við menntun framtíðarþjálfara og hjálpa þeim að nýta tæknina til að bæta heilsu og afköst fólks. Með þessu samstarfi fá nemendur tækifæri til að kynnast appinu í raunverulegum aðstæðum og læra að nýta það á markvissan hátt í starfi,“ segir Ingi Torfi Sverrisson, annar stofnenda LifeTrack.
LifeTrack var þróað í samstarfi við lækni, næringar- og íþróttafræðing.
Appið er aðgengilegt í App store og Google play.