Lemon LifeTrack vottað

Lemon hefur nú hlotið LifeTrack vottun, viðurkenningu sem veitt er veitingastöðum sem bjóða upp á hollan og næringarríkan mat sem styður við heilbrigðan lífsstíl. Þannig uppfyllir Lemon viðmið sem LifeTrack setur fram sem m.a. snúa að því að bjóða upp á rétti sem ríkir eru af trefjum og próteini, veita skýrar upplýsingar um næringargildi og tryggja að réttir á matseðli séu skráðir í LifeTrack appið. Með því geta notendur bætt réttunum beint í næringardagbók sína með einum smelli.

Markmið LifeTrack vottunarinnar er að auðvelda neytendum að taka upplýstar ákvarðanir um matarval og styðja veitingastaði í því að bjóða upp á hollari valkosti sem stuðla að betri lífsstíl. Þessi skref eru hluti hluti af heilsubyltingu LifeTrack, sem vinnur að því að bæta lífsstíl fólks á Íslandi.

"Lemon leggur metnað í að bjóða upp á hollari valkosti og stór hópur viðskiptavina þeirra er meðvitaður um heilbrigðan lífsstíl. Við erum ánægð með að Lemon sé nú hluti af LifeTrack vottuðum veitingastöðum á Íslandi sem auðveldar fólki að vita hvað það er að borða. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Lemon”, segir Linda Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra LifeTrack.

Með LifeTrack vottuninni verður fólki gert auðveldara að velja mat sem styður við heilsumarkmið þeirra og einfalt verður að setja Lemon réttina inn í LifeTrack appið.

“Lemon er staðurinn fyrir þá sem eru að huga að heilsunni og vilja holla og góða næringu. Það er því sönn ánægja að fá LifeTrack vottunina sem undirstrikar okkar áherslur og styður við heilbrigðan lífsstíl notenda LifeTrack”, segir Gurrý Indriðadóttir einn af eigendum Lemon.

Smáforritið, sem var unnið í samstarfi við næringa- og íþróttafræðinga, er aðgengilegt í Apple Store og Google Play undir LifeTrack Iceland.