Hafdís Sigurðardóttir í þriðja sæti á Smáþjóðaleikunum.
02.06.2025
Hafdís Sigurðardóttir stóð sig frábærlega og vann til verðlauna í tímatöku á Smáþjóðaleikunum í Andorra í maí. Hafdís varð í 3. sæti í tímatökum í 13,7 km langri braut sem var með 225 m. hækkun.
Við óskum Hafdísi innilega til hamingju og ljóst að það er spennandi sumar framundan hjá okkar konu. Erum ekkert smá stolt af henni. Þess má til gaman geta að hún var fyrsta íþróttakonan sem LifeTrack gerði samstarfs samning við.