Febrúar hreyfiáskorun LifeTrack í boði Pure deli

Helgina 6.-8. febrúar ætlum við í LifeTrack samfélaginu að safna kílómetrum og sjá hversu langt við komumst á einni helgi.

-Ganga

-Hlaup

-Róður

-Hjól

-Sund

-Skíði

-Fjallganga

 

Til þess að vera með þarftu að skrá þína kílómetra við áskorunina í LifeTrack samfélaginu á Facebook. Mánudaginn 9. febrúar drögum við svo út tvo heppna þátttakendur sem fá verðlaun í boði Pure deli og LifeTrack.

Síðasta áskorun bar okkur til London. Hvert komumst við núna?