Á fjórða hundrað manns skráðu sig á fyrsta Nýliðanámskeið LifeTrack

Viðtökurnar við fyrsta Nýliðanámskeiði LifeTrack hafa farið langt fram úr okkar björtustu vonum. Á fjórða hundrað manns hafa skráð sig á fyrsta námskeiðið sem hefst nú í vikunni. Nýliðanámskeiðið er nýjung hjá LifeTrack og er hugsað fyrir öll þau sem vilja læra betur á appið, komast almennilega af stað og fá persónulega aðstoð fyrstu skrefin.

Hugmyndin að námskeiðinu varð til vegna þess að við vitum að fyrstu dagarnir geta skipt miklu máli og við viljum bjóða upp á góðan stuðning við notendur. Með nýliðanámskeiðinu verða nýir notendur leiddir af stað til þess að nýta þá fjölmörgu möguleika sem LifeTrack appið býður upp á. 

Námskeiðið er ókeypis og fer fram í sérstökum Facebook hópi þar sem þátttakendur fá kennslu á LifeTrack appið, myndbönd, fræðslu, verkefni og tækifæri til að spyrja spurninga alla vikuna. Boðið verður upp á tvo beina kennslu- og peppfundi þar sem farið verður yfir appið og spurningum þátttakenda svarað. Ingi Torfi, annar stofnanda LifeTrack og Thelma Rut, reynslumikill LifeTrack-notandi, munu halda utan um fyrsta námskeiðið. 

Við erum í skýjunum yfir þessum viðtökum og ljóst að Nýliðanámskeið hjá LifeTrack mun verða haldið aftur og verður næsta námskeið auglýst síðar.